Við stöndum fyrir

Persónulegri nálgun

Við gefum okkur tíma til að skilja þarfir viðskiptavina okkar og umsækjenda.

Hreinskilni

Við erum einlægar og leggjum áherslu á hrein og bein samskipti.

Jákvæðri upplifun

Við tengjum saman fólk á faglegan hátt með áherslu á jákvæð samskipti.

Stofnendur

Dísa Dalberg hjá Ascent Partners. Eigandi og ráðgjafi.
Dísa Dalberg hjá Ascent Partners. Eigandi og ráðgjafi.

Dísa Dalberg

Eigandi og ráðgjafi

Dísa starfaði sem sölustjóri í tækniheiminum og þekkir því vel hraðann og hæfnina sem starfsfólk þarf að búa yfir til að ná árangri. Hún er með gott tengslanet af sérfræðingum og stjórnendum sem hafa skarað fram úr á sínu sviði.

Áður byggði hún upp þjálfun fyrir stjórnendur og fyrirtækjaeigendur með það að markmiði að bæta lífsgæði þeirra samhliða krefjandi starfi.

Dísa er forvitin um mannlegt eðli og hefur gaman af því að tengja saman fólk.

disa@ascentpartners.is

Dominique Elísabet James hjá Ascent Partners. Eigandi og ráðgjafi.
Dominique Elísabet James hjá Ascent Partners. Eigandi og ráðgjafi.

Dominique Elísabet James

Eigandi og ráðgjafi

Dominique stýrði ráðningum í tæknifyrirtækjum og veit því vel hvar rétta fólkið er að finna.

Hún starfaði sem ráðgjafi og mannauðsstjóri í tæknifyrirtæki í sjávarútvegi. Dominique hefur víðtæka reynslu af mannauðsmálum og þróun teyma.

Dominique hóf ferilinn í mannauðsmálum hjá alþjóðlegu hugbúnaðarfyrirtæki og fann fljótt að hraðinn í tækniheiminum átti vel við hana.

Dominique á auðvelt með að aðlagast ólíkum aðstæðum og leggur sig fram um að skilja sjónarmið annarra.

dominique@ascentpartners.is

Nálgun okkar

Besta ráðningarferlið byggist á persónulegri nálgun. Mikilvægt er að gefa sér tíma til að skilja raunverulegar þarfir viðskiptavina okkar og umsækjenda svo hægt sé að koma til móts við þær.

Fyrirtæki vilja finna rétta sérfræðinga og stjórnendur. Fólk með hæfni til að ná árangri og persónuleika sem fellur að viðkomandi vinnustaðamenningu.

Sérfræðingar og stjórnendur vilja heyra reglulega frá ráðningarstofu, vita hvaða störf eru í boði og hvort þeir komi til greina í þau.

Markmið okkar er að byggja upp traust langtímasambönd, tengja rétta fólkið saman og veita faglega leiðsögn með persónulegum stuðningi í gegnum allt ferlið.